
Þetta sagði Vladímír Pútín, Rússlandsforseti, nýlega að sögn Nettavisen.
Alþjóðlegir fjölmiðlar kalla flugskeytið yfirleitt Satan II.
Pútín sagði að flugskeytið geti dregið allt að 35.000 kílómetra og verði tilbúið til notkunar í árslok.
Bandaríska hugveitan Institute for the Study of War (ISW) segir að tilraunin með flugskeytið snúist um meira en bara aukinn vígbúnað. Kreml sé að reyna að láta líta út fyrir að Rússland sé sterkara en það er núna.
Og tímasetningin er engin tilviljun.
„Árásir Úkraínumanna langt inni í Rússlandi hafa sýnt fram á veikleika Rússlands og getuleysi í að vernda svæði langt frá vígvellinum, þar á meðal höfuðborgina, gegn slíkum árásum,“ skrifaði ISW í daglegri stöðufærslu um gang stríðsins í Úkraínu.