
Sciencealert skýrir frá þessu og segir að yfirferðin hafði náð til 30 rannsókna sem rúmlega 2.500 manns tóku þátt. Fólkið kom frá öllum heimshlutum.
Niðurstöðurnar benda til að jóga, með mikilli ákefð, í stuttum lotum (undir hálfri klukkustund) tvisvar í viku hafi bestu áhrifin á nætursvefninn.
Þessi niðurstaða kemur mörgum á óvart því jóga er oftast tengt við hægar og langvarandi æfingar.
Göngutúrar reyndust hafa næst bestu áhrifin og þar á eftir komu styrktaræfingar.
Margir þátttakendanna fundu fyrir bættum svefni eftir átta til tíu vikna æfingar og styður það við hugmyndir um að líkaminn bregðist hratt við reglulegri líkamsrækt/hreyfingu er ryþmanum er viðhaldið.
Niðurstöðurnar eru ólíkar þeim sem fyrri greining skilaði en þær bentu til að þrekþjálfun hefði bestu áhrifin á svefngæðin.
Líkleg skýring á miklum áhrifum jóga er að það nær yfir breitt svið. Sum form þess reyna á púlsinn en önnur beinast að styrk eða andlegu hliðinni.
Þetta gerir að verkum að það er erfitt að staðsetja jóga í hefðbundnum æfingaflokkum og það getur verið ástæðan fyrir því að áhrifin mælast mismunandi í hinum ýmsu rannsóknum.