fbpx
Sunnudagur 24.maí 2026
Pressan

Svona oft þarftu að endurræsa símann þinn til að halda honum í toppstandi

Pressan
Sunnudaginn 24. maí 2026 11:30

Það er gott að endurræsa farsímana. Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þú hefur kannski heyrt að farsímaframleiðendur ráðleggja fólki oft að endurræsa símana reglulega til að tryggja að þeir verði ekki hægir eða frjósi.

Samsung er engin undantekning á þessu og ráðleggur fyrirtækið eigendum Galaxy-síma að endurræsa þá reglulega, mjög gjarnan daglega. Þetta kemur fram í leiðbeiningum frá Samsung þar sem segir að sjálfvirk endurræsing sé aðferð til að tryggja að síminn virki á sem bestan hátt.

Þessar leiðbeiningar snúa fyrst og fremst að frammistöðu símanna. Þegar það hefur verið kveikt á þeim lengi, geta öpp og önnur forrit látið stjórnkerfið vinna hægar.

Endurræsing hreinsar vinnsluminni símans, lokar virkum vinnuferlum og startar kerfinu á nýjan leik. Samsung segir þetta vera lausn sem geti virkað þegar Galaxy-símar  virðast hægir eða frjósa.

Bandaríska leyniþjónustan NSA segir í opinberum ráðleggingum um farsímaöryggi að regluleg endurræsing geti verið góð venja. Ástæðan er að ákveðnar veirur geta aðeins lifað í skammtímaminni símans og eyðast því þegar hann er endurræstur. NSA segir að endurræsing veiti ekki fulla vörn en sé mikilvægt skref sem geti gert tölvuþrjótum erfiðara fyrir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Læknar segja að fólk eigi aldrei að fara í háttinn með blautt hár

Læknar segja að fólk eigi aldrei að fara í háttinn með blautt hár
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Svona lágmarkar þú hættuna á matareitrun frá afgöngum

Svona lágmarkar þú hættuna á matareitrun frá afgöngum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Bandarískur læknir þjakaður af ebólu – svona virðist hann hafa smitast

Bandarískur læknir þjakaður af ebólu – svona virðist hann hafa smitast
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hvarf Madeleine McCann – Segir að ógeðfelldur grunur gegn McCann-hjónunum lifi enn góðu lífi

Hvarf Madeleine McCann – Segir að ógeðfelldur grunur gegn McCann-hjónunum lifi enn góðu lífi
Pressan
Fyrir 4 dögum

Bótasvikari dæmd í fangelsi – Sagðist ekki geta gengið en keppti svo í 10 kílómetra hlaupi

Bótasvikari dæmd í fangelsi – Sagðist ekki geta gengið en keppti svo í 10 kílómetra hlaupi
Pressan
Fyrir 5 dögum

Sonur stofnanda Mango handtekinn vegna dauða föður síns

Sonur stofnanda Mango handtekinn vegna dauða föður síns