
Margir, sem fara snemma á fætur, segjast afkasta meira í vinnunni, séu í betra tilfinningalegu jafnvægi og séu almennt ánægðari með lífið.
Kostirnir við að vakna snemma eru að stórum hluta að laga sig að náttúrulegum dægurryþma líkamans. Psychology Today segir að fólk, sem vaknar reglulega snemma, sofi betur og það styrki ónæmiskerfið, bæti einbeitinguna og mótstöðuafl gegn stressi.
Morgnarnir eru oft rólegir og veita fólki möguleika á að temja sér hollar venjur á borð við að hreyfa sig, borða hollan morgunmat, hugleiða eða skipuleggja daginn. Þetta á allt þátt í að styrkja andlega og líkamlega vellíðan til langs tíma.
Það að vakna snemma ýtir einnig undir tilfinninguna um að maður hafi stjórn á tímanum. Mjúk byrjun á deginum veitir þér tækifæri til að forðast að láta ófyrirsjáanlega atburði stressa þig og það dregur úr daglegum kvíða og eykur ánægjutilfinningu þína.