fbpx
Sunnudagur 24.maí 2026
433Sport

Fær launahækkun fyrir gott starf undanfarið

Hörður Snævar Jónsson
Sunnudaginn 29. mars 2026 11:30

Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Everton hyggst bjóða knattspyrnustjóranum David Moyes nýjan samning í sumar eftir að hann hefur gjörbreytt gengi liðsins, samkvæmt frétt The Guardian.

Moyes sneri aftur til félagsins í janúar á tveggja og hálfs árs samningi þegar Everton var aðeins einu stigi fyrir ofan fallsæti eftir að hann tók við af Sean Dyche. Síðan þá hefur Skotinn snúið við gengi liðsins með eftirtektarverðum hætti.

Everton situr nú í áttunda sæti deildarinnar og er aðeins þremur stigum frá efstu fimm sætunum, sem gætu tryggt sæti í Meistaradeild Evrópu. Þetta er mikill viðsnúningur miðað við stöðuna þegar Moyes tók við.

Samkvæmt fréttinni litu eigendur félagsins, Friedkin-hópurinn, upphaflega á Moyes sem skammtímalausn. Nú eru þeir hins vegar sannfærðir um að 62 ára stjórinn sé rétti maðurinn til að leiða félagið til lengri tíma og vilja framlengja samning hans.

Formlegar viðræður eru sagðar fara fram eftir tímabilið, en ríkir bjartsýni innan félagsins um að Moyes sé tilbúinn að halda áfram í starfi.

Nýr samningur gæti einnig veitt honum meira vald í leikmannamálum, þar sem viðurkennt er að hann nái bestum árangri með reyndari leikmenn frekar en unga og óreynda.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Liverpool setur öflugan kantmann efst á óskalistann

Liverpool setur öflugan kantmann efst á óskalistann
433Sport
Í gær

Tómas með eldræðu í beinni eftir atburði vikunnar – „Þetta er svo ógeðslega heimskulegt“

Tómas með eldræðu í beinni eftir atburði vikunnar – „Þetta er svo ógeðslega heimskulegt“
433Sport
Í gær

Valur sótti þrjú stig norður – Dramatík í nýliðaslagnum

Valur sótti þrjú stig norður – Dramatík í nýliðaslagnum
433Sport
Í gær

Fyrsta starf Iniesta í þjálfun – Minnir á félaga sinn

Fyrsta starf Iniesta í þjálfun – Minnir á félaga sinn