fbpx
Sunnudagur 24.maí 2026
433Sport

Hraður uppgangur fyrrum liðsfélaga þeirra komið á óvart – „Ef einhver segist hafa séð þetta fyrir er hann að ljúga“

433
Laugardaginn 28. mars 2026 19:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Adam Ægir Pálsson og Jónatan Ingi Jónsson, leikmenn Vals, voru gestir Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikunni.

Tómas Bent Magnússon lék með þeim félögum í Val í fyrra en var svo seldur til Hearts í Skotlandi, þar sem hann hefur slegið í gegn og er liðið á toppnum. Kemur þetta þeim á óvart?

„Já, ég mætti á æfingu í apríl eftir að ég kom frá Ítalíu og hann var ekki einu sinni á miðjunni, hann var að spila einhvers konar hægri bakvörð. Maður sá þetta kannski ekki alveg fyrir,“ sagði Adam léttur áður en Jónatan tók til máls.

„Ef einhver segist hafa séð þetta fyrir er hann að ljúga. En hann er þarna því hann er búinn að leggja ótrúlega mikið á sig. Hann á þetta 100 prósent skilið og vonandi fer hann enn hærra.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Tuchel mjög hissa á yfirlýsingu Maguire

Tuchel mjög hissa á yfirlýsingu Maguire
433Sport
Fyrir 2 dögum

Auðunn Blöndal segir ótrúlega sögu frá New York – „Við fórum og létum þá vita að þú værir með þannig völd að þú gætir lokað þessum stað“

Auðunn Blöndal segir ótrúlega sögu frá New York – „Við fórum og létum þá vita að þú værir með þannig völd að þú gætir lokað þessum stað“