fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
433Sport

Smit í Vesturbæinn?

Helgi Sigurðsson
Þriðjudaginn 6. júlí 2021 08:50

Guy Smit, markvörður Leiknis Reykjavíkur (til hægri)

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

KR horfir á markvörðinn Guy Smit, hjá Leikni Reykjavík, sem hugsanlegan arftaka Beitis Ólafssonar. Það var greint frá þessu í nýjasta þætti Dr. Football.

Beitir hefur staðið sig vel í marki KR frá því hann kom til liðsins snemma sumars 2017. Hann er þó orðinn 35 ára gamall. Því er félagið væntanlega farið að horfa á aðra markverði með framtíðina að sjónarmiði. Beitir er samningsbundinn KR út næstu leiktíð.

Smit er 25 ára gamall Hollendingur sem hefur leikið með Leikni frá því síðasta sumar. Hann hjálpaði liðinu til að mynda upp í efstu deild í haust. Smit er samningsbundinn Leikni út leiktíðina.

Kristján Óli Sigurðsson, sem greindi frá því að KR hefði áhuga á Smit, virðist ekki ýkja spenntur fyrir þessum hugsanlegu félagaskiptum.

,,Mér finnst Guy Smit ágætis markmaður en ef KR ætlar að fara að sækja málma aftur, sem er væntanlega krafan vestur í bæ, þá er þetta ekki markmaður sem er að fara að færa málma í Frostaskjólið,“ sagði Kristján í Dr. Football.

Arnar Sveinn Geirsson, formaður leikmannasamtakanna, var einnig í þættinum og tók hann í sama streng. ,,Ég myndi heldur ekki segja að þetta sé uppfærsla frá Beiti.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Netverjar hafa tekið eftir atviki sem sást ekki í sjónvarpi – Hafði líklega mikil áhrif á úrslit gærkvöldsins

Netverjar hafa tekið eftir atviki sem sást ekki í sjónvarpi – Hafði líklega mikil áhrif á úrslit gærkvöldsins
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Telur að Salah sé fyrir löngu búinn að semja við annað lið en Liverpool

Telur að Salah sé fyrir löngu búinn að semja við annað lið en Liverpool
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Adam birtir myndir af skónum hans Arons með æluna upp í háls

Adam birtir myndir af skónum hans Arons með æluna upp í háls
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Hörmulegar vítaspyrnur kostuðu City – Real Madrid komið í undanúrslit

Hörmulegar vítaspyrnur kostuðu City – Real Madrid komið í undanúrslit
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Karl-remba KR-inga í Morgunblaðinu vekur nokkra athygli – Segja aðra borga betur

Karl-remba KR-inga í Morgunblaðinu vekur nokkra athygli – Segja aðra borga betur
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Þrátt fyrir framhjáhald og vesen mætti Walker á fæðingardeildina og hélt í hönd eiginkonunnar

Þrátt fyrir framhjáhald og vesen mætti Walker á fæðingardeildina og hélt í hönd eiginkonunnar