Það styttist í annan enda á félagaskiptaglugganum og félögin fara mörg hver að láta til skara skríða eftir póker sumarsins.
Manchester United stefnir að því að losa nokkra leikmenn til að gera síðasta áhlaup sitt á Jadon Sancho kantmann Dortmund.
Þannig segja ensk blöð að United vilji losna við sex leikmenn til að hafa efni á Sancho og Alex Telles vinstri bakverði Porto.
United er að nálgast sölu á Chris Smalling til Roma fyrir 18 milljónir punda, félagið vill líka losna við Phil Jones, Diogo Dalot og Marcos Rojo.
Þá er markvörðurinn Sergio Romero til sölu en United ætlar að hafa Dean Henderson til að berjast við David De Gea. Þá er Andreas Pereira miðjumaður félagsins sterklega orðaður við Benfica.