Það er einn leikur á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en leikið er á heimavelli West Ham.
West Ham fær mjög erfitt verkefni og tekur á móti toppliði Liverpool sem getur náð 19 stiga forskoti á toppnum með sigri.
West Ham er í fallbaráttu og er aðeins með betri markatölu en liðin í 18 og 19 sæti deildarinnar.
Hér má sjá byrjunarlið kvöldsins.
West Ham: Fabianski, Cresswell, Diop, Ogbonna, Rice, Noble, Masuaku, Snodgrass, Lanzini, Ngakia, Haller.
Liverpool: Alisson, Alexander-Arnold, Robertson, Van Dijk, Gomez, Henderson, Wijnaldum, Oxlade-Chamberlain, Salah, Origi, Firmino.