
Everton hefur tekið upp viðræður á ný um kaup á miðjumanninum Hayden Hackney hjá Middlesbrough.
Hackney, sem er 23 ára gamall, var valinn besti leikmaður Middlesbrough og einnig besti leikmaður Championship-deildarinnar á síðustu leiktíð.
Crystal Palace, Tottenham og Nottingham Forest hafa einnig sýnt leikmanninum áhuga. Þá hefur hann eitthvað verið orðaður við Manchester United, þar sem fyrrum stjóri hans hjá Middlesbrough, Michael Carrick, er.
Samkvæmt enskum miðlum vill Hackney hins vegar helst ganga til liðs við Everton og vinna undir stjórn David Moyes.
Moyes hefur lengi verið mikill aðdáandi leikmannsins og vill styrkja miðjuna hjá Everton, sérstaklega þar sem Idrissa Gueye er orðinn 36 ára og framtíð hans óljós.
Hackney á eitt ár eftir af samningi sínum við Middlesbrough og vill reyna fyrir sér í ensku úrvalsdeildinni.