
Arne Slot gæti snúið fljótt aftur í þjálfun eftir brottrekstur sinn frá Liverpool um síðustu helgi.
Slot var rekinn eftir að Liverpool endaði aðeins í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð, ári eftir að hafa stýrt félaginu til Englandsmeistaratitils.
Marc van der Kraan, hollenskur blaðamaður, telur að Slot gæti verið sterkur kandídat til að taka við hollenska landsliðinu ef Ronald Koeman hættir eftir HM.
„Ég held að Arne Slot væri mjög spenntur fyrir því starfi. Hann væri líklega fullkominn kandídat,“ segir Van der Kraan.
Slot hefur einnig verið orðaður við AC Milan eftir að Max Allegri var rekinn frá félaginu. Van der Kraan telur einmitt að leikstíll Slott henti ítalska boltanum, sem og öðrum deildum í Evrópu, fremur en þeim enska.