

Emma Louise Jones, sem er þekkt fyrir umfjöllun um íþróttir í bresku sjónvarpi, brást á skemmtilegan hátt við grófum skilaboðum sem hún fékk send á samfélagsmiðlum um helgina.
Einn fylgjenda hennar sendi henni afar dónaleg skilaboð um hvað hann langaði til að gera við hana í rúminu. Jones deildi þeim á Instagram og skrifaði kaldhæðnislega athugasemd við.

„Æ, þú ert nú algjör rómantíkus Brian,“ skrifaði hún.
Jones, sem er með hátt í 500 þúsund fylgjendur á Instagram, hefur áður gert grín að skilaboðunum sem hún fær frá fylgjendum sínum, en hún þarf því miður að glíma við marga dóna á samfélagsmiðlum.