fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
433Sport

Póstburðarmaður sem þénaði 35 milljónir króna með sölu á ólöglegu streymi dæmdur í fangelsi

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 3. júní 2026 18:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breskur póstburðarmaður hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að reka umfangsmikla ólöglega streymisþjónustu sem seldi aðgang að íþróttaútsendingum, þar á meðal leikjum úr ensku úrvalsdeildinni.

Michael David Barrow, 48 ára gamall frá Milford Haven í Wales, rak IPTV-þjónustuna „MB Streams“ í um fimm ár. Á því tímabili er talið að hann hafi haft yfir 2.000 viðskiptavini og grætt meira en 200 þúsund pund, jafnvirði rúmlega 35 milljóna íslenskra króna.

Samkvæmt saksóknurum urðu sjónvarpsstöðvar á borð við Sky Sports, TNT Sports og BT Sport fyrir tekjutapi sem gæti numið allt að sex milljónum punda vegna starfseminnar.

Dómari við Swansea Crown Court sagði að um umfangsmikil fjársvik hefði verið að ræða og að græðgi hefði verið helsti drifkrafturinn að baki brotunum.

Barrow hvatti viðskiptavini sína til að merkja greiðslur sem kaup á gömlum knattspyrnutreyjum til að fela raunverulegan tilgang þeirra. Þá notaði hann einnig dulkóðaða samskiptaforritið Telegram til að eiga samskipti við viðskiptavini sína.

Þrátt fyrir að lögregla hefði áður varað hann við og krafist þess að hann hætti starfseminni hélt hann henni áfram, sem hafði áhrif á þyngd dómsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Liverpool staðfestir að þrír úr starfsliði Slot hafi verið leystir frá störfum

Liverpool staðfestir að þrír úr starfsliði Slot hafi verið leystir frá störfum
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Brighton með áhugavert tilboð í varnarmann Tottenham

Brighton með áhugavert tilboð í varnarmann Tottenham
433Sport
Í gær

Trippier sagður brjálaður – Skrifaði undir í vikunni en skoðar að rifta samningi

Trippier sagður brjálaður – Skrifaði undir í vikunni en skoðar að rifta samningi