fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
433Sport

Kvennalandsliðið komið saman í Póllandi – Mikilvægur leikur á föstudag

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 3. júní 2026 12:00

Mynd: KSÍ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenska kvennalandsliðið hefur hafið undirbúning sinn fyrir leikina gegn Úkraínu og Spáni.

Liðið er komið saman í Kraká í Póllandi, en Ísland mætir Úkraínu í Mielec í Póllandi á föstudag og hefst leikurinn kl. 16:00 að íslenskum tíma. Ísland mætir svo Spáni þriðjudaginn 9. júní á Laugardalsvelli og hefst sá leikur kl. 19:00.

Báðir leikirnir verða í beinni útsendingu á RÚV.

Íslenska liðið er í þriðja sæti riðilsins eftir fjóra leiki með þrjú stig. Spánn er í öðru sæti riðilsins með níu stig og Úkraína er í neðsta sæti án stiga. Mikilvægt er að enda fyrir ofan Úkraínu og halda í þriðja sætið.

Mótið á vef KSÍ

Miðasala á leikinn gegn Spáni er í fullum gangi á miðasöluvef KSÍ. Líkt og fyrir leikina í apríl er boðið upp á þann möguleika að velja sitt félag og fær þá félagið 20% af miðaverðinu beint til sín.

Miðasala

Það lið sem endar í efsta sæti riðilsins fer beint í lokakeppni HM 2027, sem verður haldin í Brasilíu, á meðan hin þrjú liðin fara í umspil. Dregið verður í umspilið 18. júní.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Liverpool staðfestir að þrír úr starfsliði Slot hafi verið leystir frá störfum

Liverpool staðfestir að þrír úr starfsliði Slot hafi verið leystir frá störfum
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Brighton með áhugavert tilboð í varnarmann Tottenham

Brighton með áhugavert tilboð í varnarmann Tottenham
433Sport
Í gær

Trippier sagður brjálaður – Skrifaði undir í vikunni en skoðar að rifta samningi

Trippier sagður brjálaður – Skrifaði undir í vikunni en skoðar að rifta samningi