
Tottenham er í viðræðum við Manchester City um kaup á brasilíska kantmanninum Savinho.
Fabrizio Romano segir viðræðurnar ganga vel og að leikmaðurinn sjálfur vilji færa sig til Tottenham í leit að stærra hlutverki.
Xavi Simons, leikmaður Tottenham, hefur einnig gefið sterklega í skyn á samfélagsmiðlum að þessi fyrrum félagi hans úr PSV sé á leiðinni, eins og sjá má hér neðar.
Manchester City ku vera tilbúið að selja Savinho fyrir rétta upphæð, en félagið vill um 60 milljónir punda fyrir leikmanninn.
Tottenham hefur þegar fengið Marcos Senesi og Andy Robertson til félagsins í sumar og vill styrkja hópinn enn frekar eftir afar dapurt tímabil þar sem liðið bjargaði sér frá falli í lokaumferð úrvalsdeildarinnar.
