fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
433Sport

FIFA sætir þungum ásökunum þegar stutt er í HM

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 3. júní 2026 14:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

FIFA hefur verið sakað um að vinna með endursölusíðum til að losa sig við miða á leiki sem seljast illa á HM vestan hafs í sumar.

Málið snýst meðal annars um leik Sádi-Arabíu og Grænhöfðaeyja í Houston þann 26. júní, þar sem stór samliggjandi svæði af sætum hafa birst á endursölusíðunni SeatGeek á mun lægra verði en hjá FIFA sjálfu.

Florian Ederer, austurrískur hagfræðingur, segir þetta benda sterklega til þess að FIFA sé sjálft að koma óseldum miðum inn á endursölumarkaðinn.

„Þetta lítur ekki út eins og venjuleg endursala frá stuðningsmönnum. Hér eru heilar raðir og stór svæði seld saman,“ skrifaði hann á X.

Ederer telur FIFA vilja forðast að lækka opinbert miðaverð þar sem það gæti kallað á að stuðningsmenn sem þegar hafa keypt miða á hærra verði vilji fá endurgreiðslu.

Sumir stuðningsmenn hafa bent á að sömu sæti kosti um 700 dollara hjá FIFA en aðeins um 200 dollara á SeatGeek.

FIFA hefur sætt mikilli gagnrýni fyrir hátt miðaverð á HM, en dýrustu miðarnir á úrslitaleikinn kosta allt að 32 þúsund dollara eða 4 milljónir íslenskra króna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Liverpool útilokar að selja sitt mesta efni

Liverpool útilokar að selja sitt mesta efni
433Sport
Í gær

Fyrirsætan sem elskar Ísland höfð að háði og spotti fyrir rangar fullyrðingar á samfélagsmiðlum

Fyrirsætan sem elskar Ísland höfð að háði og spotti fyrir rangar fullyrðingar á samfélagsmiðlum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður risastór ákvörðun tekin varðandi Ronaldo?

Verður risastór ákvörðun tekin varðandi Ronaldo?
433Sport
Fyrir 2 dögum

Lék undir stjórn Iraola og segir stuðningsmönnum Liverpool að búast við þessu

Lék undir stjórn Iraola og segir stuðningsmönnum Liverpool að búast við þessu
433Sport
Fyrir 2 dögum

Íþróttavikan: Tíðindi úr Hafnarfirði, þjálfarabreytingar og silly season

Íþróttavikan: Tíðindi úr Hafnarfirði, þjálfarabreytingar og silly season
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sara Björk komin heim – „Mér þykir ótrúlega vænt um þennan klúbb“

Sara Björk komin heim – „Mér þykir ótrúlega vænt um þennan klúbb“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þessir sex koma til greina sem leikmaður ársins á Englandi – Þrír frá Arsenal

Þessir sex koma til greina sem leikmaður ársins á Englandi – Þrír frá Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Líklegt að Slot hafni tilboðinu frá London

Líklegt að Slot hafni tilboðinu frá London