

Cole Palmer, leikmaður Chelsea, hefur sést njóta lífsins á spænsku eyjunni Ibiza eftir að hafa ekki verið valinn í HM-hóp Englands af landsliðsþjálfaranum Thomas Tuchel.
Á meðan enska landsliðið er komið til Flórída í Bandaríkjunum til að undirbúa sig fyrir heimsmeistaramótið virðist Palmer vera að nýta frítímann vel. Hann sást á Ocean Beach Club, vinsælum skemmtistað á Ibiza sem hefur lengi verið vinsæll meðal leikmanna úr ensku úrvalsdeildinni.
Palmer var myndaður ásamt Wayne Lineker, eiganda staðarins og bróður Gary Lineker. Athygli vakti að Palmer var klæddur nánast nákvæmlega sömu fötum og þegar hann heimsótti staðinn síðasta sumar; hvítri stuttermabol, felulitabuxum, íþróttaskóm og með keðju um hálsinn.
Palmer þótti eitt mesta efni enska landsliðsins fyrir EM 2024 en hefur átt erfitt tímabil með Chelsea. Hann skoraði tíu mörk í ensku úrvalsdeildinni á nýliðnu tímabili, þar af fimm úr vítaspyrnum.
Í viðtali við The Guardian fyrr á árinu sagði Palmer að þrálát meiðsli í nára hefðu haft mikil áhrif á frammistöðu hans. Hann hafi spilað lengi vel meiddur og ekki náð fullri heilsu fyrr en undir lok tímabilsins.