
Emiliano Buendia gæti enn komist í HM-hóp Argentínu þrátt fyrir að hafa ekki verið valinn í 26 manna hóp Lionel Scaloni fyrir mótið.
Samkvæmt argentínskum miðlum hefur Buendia verið beðinn um að aflýsa sumarfríi sínu og halda áfram að æfa ef kalla þarf á hann vegna meiðsla í hópnum.
Er þetta vegna þess að nokkrir leikmenn argentíska liðsins koma tæpir inn í mótið.
Buendia átti flott tímabil með Aston Villa þar sem hann skoraði tíu mörk og lagði upp átta til viðbótar.