
Arne Slot hefur sent stuðningsmönnum Liverpool kveðjubréf eftir að félagið rak hann úr starfi knattspyrnustjóra á laugardag. Hollendingurinn segist yfirgefa félagið sannfærður um að Liverpool sé enn meðal bestu liða Evrópu og vel í stakk búið fyrir framtíðina.
Slot stýrði Liverpool til Englandsmeistaratitils á sínu fyrsta tímabili hjá félaginu, en var látinn taka pokann sinn eftir að liðið endaði í fimmta sæti úrvalsdeildarinnar á nýafstöðnu tímabili, 25 stigum á eftir meisturum Arsenal. Þrátt fyrir það tryggði Liverpool sér sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.
Í opnu bréfi til stuðningsmanna þakkar Slot fyrir stuðninginn sem hann fékk frá fyrsta degi og sagðist skilja félagið eftir á góðum stað.
„Ég fer héðan með fulla trú á því sem fram undan er. Leikmennirnir hafa lagt gríðarlega mikið á sig fyrir félagið og byggt upp grunn sem þeir munu búa að um ókomin ár,“ skrifaði Slot.
Hann rifjar einnig upp meistaratitilinn sem Liverpool vann undir hans stjórn og segir sérstaklega ánægjulegt að stuðningsmennirnir hefðu fengið að upplifa þann árangur, þar sem að takmarkanir vegna heimsfaraldursins höfðu áhrif á titilfögnuðinn árið 2020.
Slot minnist jafnframt á erfiðustu stund tíman síns hjá Liverpool, þegar Diogo Jota lést í bílslysi ásamt bróður sínum sumarið 2025. Hann segir stuðning félagsins og stuðningsmanna í kjölfarið hafa verið ótrúlegan og að minningin um samstöðu Liverpool-fjölskyldunnar myndi fylgja sér alla tíð.
Ekki er búið að ganga frá ráðnigu á eftirmanni Slot en líklegt þykir að það verði Andoni Iraola, sem hætti með Bournemouth nýlega eftir að hafa náð þar mögnuðum árangri og komið liðinu í Evrópudeildina.