
Sex manns voru stungin með hnífi og 24 handteknir í tengslum við sigurhátíð Arsenal í norðurhluta Lundúna í gær, þar sem liðið fagnaði Englandsmeistaratitlinum með stuðningsmönnum.
Fæstir slösuðust alvarlega en eitt fórnarlamb, karlmaður á þrítugsaldri, var fluttur á sjúkrahús í lífshættu. Ástand hans er nú stöðugt.
Yfir 500 lögreglumenn voru á vettvangi þar sem hundruð þúsunda stuðningsmanna fögnuðu titlinum. Tveir lögreglumenn slösuðust í átökum og fjórir lögreglubílar urðu fyrir skemmdum.
Lögreglan segir að ofbeldið hafi að mestu brotist út síðar um kvöldið eftir að flestir stuðningsmenn höfðu yfirgefið svæðið. Rannsókn á stunguárusunum stendur yfir.