fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
433Sport

Segir að menn í Fossvogi hafi bakkað út þegar þeir heyrðu af mögulegum launapakka Tryggva á Akranesi

433
Mánudaginn 1. júní 2026 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Albert Brynjar Ingason, sparkspekingur, segir að Víkingar hafi viljað bjóða Tryggva Hrafni Haraldssyni framherja Vals samning. Þeir hafi hins vegar bakkað frá þegar þeir heyrðu af þeim launatölum sem eru í boði fyrir Tryggva á Akranesi.

Tryggvi Hrafn verður samningslaus hjá Val í haust og hefur uppeldisfélag hans, ÍA reynt að fá hann ítrekað síðustu mánuði.

Félögum er frjálst að ræða við Tryggva núna og reyna að tryggja sér starfskrafta hans eftir tímabilið. Ekki er útilokað að Valur reyni að halda honum.

„Ég frétti af því að Víkingum hefði verið boðið að taka þátt í kapphlaupinu um Tryggva Hrafn, bjóða honum samning,“ sagði Albert Brynjar í hlaðvarpinu Dr. Football í gærkvöldi.

Víkingar voru samkvæmt Alberti spenntir að opna samtalið en svelgdist fljótt á kaffinu.

„Þeir fengu að vita að ÍA væru komnir inn í þetta, það vita allir af því. Víkingar voru til í það og opnuðu samtalið, eftir að þeir heyrðu hvað Skagamenn eru að bjóða honum. Þá sögðu þeir takk en nei takk og telja sig ekki eiga séns í það.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Liverpool útilokar að selja sitt mesta efni

Liverpool útilokar að selja sitt mesta efni
433Sport
Í gær

Fyrirsætan sem elskar Ísland höfð að háði og spotti fyrir rangar fullyrðingar á samfélagsmiðlum

Fyrirsætan sem elskar Ísland höfð að háði og spotti fyrir rangar fullyrðingar á samfélagsmiðlum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður risastór ákvörðun tekin varðandi Ronaldo?

Verður risastór ákvörðun tekin varðandi Ronaldo?
433Sport
Fyrir 2 dögum

Lék undir stjórn Iraola og segir stuðningsmönnum Liverpool að búast við þessu

Lék undir stjórn Iraola og segir stuðningsmönnum Liverpool að búast við þessu
433Sport
Fyrir 2 dögum

Íþróttavikan: Tíðindi úr Hafnarfirði, þjálfarabreytingar og silly season

Íþróttavikan: Tíðindi úr Hafnarfirði, þjálfarabreytingar og silly season
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sara Björk komin heim – „Mér þykir ótrúlega vænt um þennan klúbb“

Sara Björk komin heim – „Mér þykir ótrúlega vænt um þennan klúbb“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þessir sex koma til greina sem leikmaður ársins á Englandi – Þrír frá Arsenal

Þessir sex koma til greina sem leikmaður ársins á Englandi – Þrír frá Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Líklegt að Slot hafni tilboðinu frá London

Líklegt að Slot hafni tilboðinu frá London