

Raheem Sterling hefur lent í alvarlegum vandræðum utan vallar eftir að lögregla stöðvaði hann í kjölfar umferðaratviks á M3-hraðbrautinni í Hampshire á Englandi.
Fyrrverandi landsliðsmaður Englands var við stýrið á Lamborghini Urus V8 jeppa sem er metinn á um 270 þúsund pund þegar hann er sagður hafa ekið óreglulega og sveiflast á milli akreina snemma á fimmtudagsmorgni.
Vitni sem ók sendibíl á svæðinu sagði við breska fjölmiðla að hann hefði ítrekað flautað til að reyna að vekja athygli Sterling þar sem bíllinn virtist stjórnlaus.
„Hann var stöðugt að reka sig til vinstri og var nálægt því að keyra á vegrið. Á einum tímapunkti hélt ég að hann myndi lenda á bílnum mínum,“ sagði ökumaðurinn.
Samkvæmt vitninu lenti Lamborghini-bifreiðin síðar á vegriði með þeim afleiðingum að hjólin lyftust hátt frá jörðu. Þá er Sterling einnig sagður hafa ekið rangt inn á afrein um tíma og stefnt í átt að umferð á móti.
Lögreglan stöðvaði Sterling klukkan níu um morguninn. Hann hefur verið yfirheyrður vegna gruns um hættulegan akstur, akstur undir áhrifum fíkniefna, vörslu fíkniefna í C-flokki og að hafa neitað að afhenda sýni.
Sterling hefur verið látinn laus gegn tryggingu á meðan rannsókn málsins heldur áfram. Enn hefur ekkert verið gefið út um hvort ákæra verði gefin út í málinu.