

FIFA mun innleiða nýjar reglur fyrir Heimsmeistaramótið 2026 sem gætu haft veruleg áhrif á föst leikatriði. Reglan hefur þegar fengið viðurnefnið „anti-Arsenal lögin“ vegna þess að hún beinist meðal annars að þeirri tegund blokkunar sem Arsenal hefur nýtt sér með góðum árangri.
Nýja reglan bannar leikmönnum að hindra eða loka leið andstæðinga við hornspyrnur og aukaspyrnur áður en boltinn er settur í leik. Markmiðið er að koma í veg fyrir svokallaða „blokkara“, líkt og tíðkast í körfubolta.
FIFA og Alþjóðaknattspyrnuráðinu (IFAB) þykir þróunin hafa gengið of langt og munu dómarar nú geta dæmt brot áður en boltinn er spyrntur.
Mark Englands gegn Úrúgvæ í vináttulandsleik í mars var notað sem dæmi í kynningu á reglunni. Þar sáust Adam Wharton og Harvey Barnes loka á varnarmenn áður en Ben White skoraði úr hornspyrnu. Samkvæmt nýju reglunni hefði markið verið dæmt af.
Arsenal hefur verið sérstaklega nefnt í umræðunni þar sem liðið skoraði 25 mörk úr föstum leikatriðum í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.
Fleiri reglubreytingar taka einnig gildi á HM. Leikmenn sem hylja munninn í átökum geta fengið rautt spjald, lið sem ganga af velli í mótmælaskyni tapa leiknum og varamenn verða að bíða ef leikmaður sem er tekinn af velli er of lengi að yfirgefa völlinn.
Nýju reglurnar taka gildi í júlí og verða notaðar bæði á HM og í stærstu deildum heims.