
Pierre Sage er á leið í viðræður um að taka við sem stjóri Crystal Palace. BBC greinir frá.
Sage, sem gerði Lens að frönskum bikarmeisturum í vor og skilaði liðinu í 2. sæti deildarinnar, er talinn einn af efnilegustu þjálfurum Evrópu og sagður opinn fyrir því að taka við Palace.
Viðræðurnar fara fram fyrri part þessarar viku en Palace flýtir sér hægt og skoðar fleiri nöfn meðfram.
Má nefna menn eins og Frank Lampard, Kieran McKenna og Thomas Frank í þeim efnum.
Oliver Glasner verður ekki áfram með Palace. Hann náði frábærum árangri með liðið, vann enska bikarinn í fyrra og Sambandsdeildina á dögunum.