
Manchester United ku hafa áhuga á að fá franska kantmanninn Moussa Diaby til félagsins í sumar.
Diaby, sem er 26 ára, lék áður með Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni en gekk til liðs við Al-Ittihad fyrir um 50 milljónir evra 2024. Þar átti hann gott tímabil.
United er sagt hafa fylgst náið með kappanum, sem getur spilað á báðum köntum og býður upp á mikinn hraða.
Óvíst er þó hvort Al-Ittihad sé tilbúið að selja leikmanninn, enda er hann samningsbundinn félaginu til ársins 2029 og er lykilmaður.