fbpx
Mánudagur 15.júní 2026
433Sport

Arnar Gunnlaugs ósáttur og Ísland ratar í heimsfréttirnar

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 1. júní 2026 09:57

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenska karlalandsliðið varð eitt af fyrstu landsliðunum til að finna fyrir nýjum og mun harðari reglum sem verða í gildi á HM í sumar þegar Strákarnir okkar töpuðu 1-0 fyrir Japan í vináttulandsleik um helgina. Fjallað er um þetta í erlendum miðlum.

Alþjóðaknattspyrnusambandið hefur staðfest fjölda reglubreytinga sem þegar hafa verið teknar í gildi og verða notaðar á heimsmeistaramótinu vestan hafs. Meðal annars verða reglur varðandi leiktafir hertar verulega.

Framkvæmi lið ekki innkast innan fimm sekúndna færist það yfir til andstæðinganna, en tafir við markspyrnur geta leitt til þess að dæmd verði hornspyrna á liðið sem brýtur regluna. Þá munu leikmenn sem hylja munn sinn í átökum eða rifrildum eiga á hættu að fá rautt spjald.

Ein umdeildasta breytingin snýr þó að skiptingum. Þegar skipting hefur verið tilkynnt fær leikmaður sem er að fara af velli aðeins tíu sekúndur til að yfirgefa völlinn, stystu leið. Takist það ekki má varamaðurinn ekki koma inn á fyrr en leikurinn stöðvast næst, að minnsta kosti mínútu eftir að leikur hefst á ný.

Það var einmitt þessi regla sem kom Íslandi í koll gegn Japan. Þegar tvöföld skipting var framkvæmd á 85. mínútu gekk fyrri skiptingin eðlilega fyrir sig, en Kristian Nökkvi Hlynsson var of lengi að yfirgefa völlinn. Dómarinn neitaði því að hleypa varamanninum Ísaki Snæ Þorvaldssyni inn á og Ísland varð að leika manni færra þar til boltinn fór næst úr leik.

Það tók alls eina mínútu og 51 sekúndu og á þeim tíma skoraði Koki Ogawa sigurmark Japana með skalla á 87. mínútu. Markið kom því á meðan Íslendingar voru aðeins tíu inni á vellinum.

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari gagnrýndi þessar nýju reglur FIFA að leik loknum. Telur hann afar sérstakt að reyna að koma í veg fyrir leiktafir með þeim afleiðingum að annað liðið spili manni færra og þurfi því að spila varnarsinnaðri fótbolta á meðan.

Þetta má sjá hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Fær greitt þrátt fyrir að fá ekki að vinna

Fær greitt þrátt fyrir að fá ekki að vinna
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Stórhuga Skagamenn með seðlana á lofti og virðast hvergi nærri hættir

Stórhuga Skagamenn með seðlana á lofti og virðast hvergi nærri hættir
433Sport
Í gær

Amorim færist nær starfinu

Amorim færist nær starfinu
433Sport
Í gær

Með skýr skilaboð til Arnars Gunnlaugs – „Ég er fastur á þeirri skoðun“

Með skýr skilaboð til Arnars Gunnlaugs – „Ég er fastur á þeirri skoðun“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Stjarnan staðfestir komu Jóns Þórs – Tekur við af Jökli

Stjarnan staðfestir komu Jóns Þórs – Tekur við af Jökli
433Sport
Fyrir 2 dögum

Skorar á KSÍ og segir þeim að horfa til Englands

Skorar á KSÍ og segir þeim að horfa til Englands
433Sport
Fyrir 2 dögum

Djarfur klæðaburður í stúkunni vekur gríðarlega athygli – Myndir

Djarfur klæðaburður í stúkunni vekur gríðarlega athygli – Myndir
433Sport
Fyrir 2 dögum

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls