
Mikil læti urðu í París eftir að Paris Saint-Germain tryggði sér Evrópumeistaratitilinn með sigri á Arsenal í úrslitaleiknum í Búdapest.
Franska lögreglan greindi frá því að 780 manns hefðu verið handteknir um nóttina og 219 slasast þegar hátíðarhöld fóru úr böndunum.
Þúsundir stuðningsmanna söfnuðust saman á Champs-Élysées-breiðgötunni þar sem flugeldum og blysum var skotið á loft. Lögregla beitti táragasi á mannfjöldann eftir að átök brutust út og truflanir urðu á almenningssamgöngum í borginni.
Þá voru dæmi um að kveikt hafi verið í bílum og hjólum.
Innanríkisráðherrann Laurent Nunez fordæmdi óeirðirnar og sagði þær algjörlega óásættanlegar, en bætti við að meirihluti stuðningsmanna hefði fagnað á friðsamlegan hátt.