

Viðar Örn Kjartansson, fyrrum atvinnu- og landsliðsmaður og nú leikmaður Selfoss, var gestur Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikunni.
Viðar lék með KA tímabilin 2024 og 2025 og var tíðin þar kaflaskipt. Hann var lykilmaður þegar liðið varð bikarmeistari á fyrra árinu en tækifærin voru af afar skornum skammti seinna tímabilið, þar sem meiðsli höfðu einnig sett sitt strik í reikninginn.
„Tímabilið í fyrra var vonbrigði. Ég sá í hvað stefndi og metnaðurinn hrundi bara. Ég hefði þurft að koma inn á og skora þrennu í einhverjum leik til að það myndi breytast aftur. Mér fannst það í raun mjög skrýtið,“ sagði Viðar, sem skipti yfir í uppeldisfélagið Selfoss í vetur.
„Eins og staðan er í dag þarf ég að vera í réttu leikskipulagi með rétta menn í kringum mig. Þú getur ekki haft fjóra 35 ára gæja í fjórum fremstu stöðunum, ekki nema þú sért að vinna alla leiki. Þá var tveimur kippt út.
Þú ert með mismunandi leikmenn á Selfossi. Ég er ekki í 90 mínútur að hlaupa 14 kílómetra. Ég er meira að fá boltann, finna svæði fyrir aðra leikmenn og gera þá betra. Ég tek mín hlaup og færi og mörk samt.“
Viðar tók þó fram að hann hafi kvatt KA á afar jákvæðan hátt og talar hann vel um þjálfarann Hallgrím Jónasson.
Nánar í spilaranum.