

Lettneska knattspyrnukonan Olga Sevcova í liði ÍBV hefur verið úrskurðuð í tveggja leikja bann af aganefnd KSÍ fyrir það sem nefndin skilgreinir sem ofsafengna framkomu í leik á dögunum.
Atvikið átti sér stað í þarsíðustu umferð, þar sem ÍBV tapaði 3-0 fyrir FH. Um var að ræða olnbogaskot en dómarar leiksins urðu ekki varir við atvikið í leiknum og slapp hún því við rautt spjald. Aganefndin tók málið svo upp.
„Að mati nefndarinnar sést greinilega á myndböndum sem liggja fyrir þegar leikmaður ÍBV, Olga Sevcova, rekur olnboga í andlit leikmanns FH þegar boltinn er fjarri.
Að mati aga- og úrskurðarnefndar er um að ræða alvarlegt agabrot sem felur í sér ofsafengna framkomu og varði viðurlögum samkvæmt 13. gr. reglugerðar KSÍ um aga- og úrskurðarmál. Aga- og úrskurðarnefnd lítur á sem svo að um sé að ræða háttsemi sem geti verið hættuleg,“ segir meðal annars í úrskurði nefndarinnar.
Fjallað var um málið á Sýn Sport og má sjá atvikið og umfjöllunina í spilaranum hér að neðan.