

„Það er pressa á Jökli Elísabetarsyni, þjálfara Stjörnunnar. Eftir að stuðningsmenn Víkings sungu í fyrri hálfleik ‘Rekinn á morgun’ sönglaði einn stuðningsmaður Stjörnunnar ‘Rekinn í hálfleik’ og Garðbæingar klöppuðu,“ segir á Facebook síðu Fótbolta.net.
Stjarnan tapaði í gær 3-1 á heimavelli sínum í Garðabæ gegn Íslandsmeisturum, Víkings. Þetta var sjöundi leikur liðsins í röð í deildinni án sigurs, uppskeran aðeins eitt stig.
Svo virðist sem stuðningsmenn Stjörnunnar kalli eftir breytingum en Jökull gerði virkilega vel með Stjörnuna á síðustu leiktíð og kom liðinu í Evrópusæti.
Eftir tvo sigra í fyrstu tveimur leikjum tímabilsins hefur liðið eins og fyrr segir sótt eitt stig af 21 mögulegu.
Jökull hefur stýrt Stjörnunni frá árinu 2023.