

Helgi Fannar og Hörður Snævar fóru yfir það helsta í Íþróttavikunni á 433.is.
Heimir Guðjónsson tók fyrrum lærisveina sína í FH í kennslustund er liðin mættust í bikarnum á dögunum. Hans menn í Fylki, sem spila í næstefstu deild, unnu 5-0 sigur.
„Þeir vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið,“ sagði Helgi um FH-inga.
„Sagan er bara hver stendur í boðvangnum hjá Fylki og teflir upp í þennan sigur. Öllum FH-ingum sem ég talaði við sveið í gær og voru niðurlútir og fullir af vonleysi,“ sagði Hörður.
FH er einnig aðeins með tvö stig í Bestu deildinni eftir sex leiki.
„Þetta brýtur FH annað hvort endanlega eða að þetta er einhver punktur þar sem er eihver viðsnúningur.“
Heimir fékk ekki nýjan samning hjá FH í haust þrátt fyrir að hafa skilað frábæru starfi.
„Hann var sár og svekktur að þurfa að hætta með FH. Samningurinn var ekki endurnýjaður, það var hans vilji að vera áfram,“ sagði Hörður.
Jóhannes Karl Guðjónsson tók við af Heimi.
„Það er ekki tilfinning manns að það sé að fara að myndast nein pressa á Jóa Kalla í starfi frá þeim sem hafa eitthvað um það að segja.
Svo eru stuðningsmenn allt annar angi og ég held að það séu rosalega fáir stuðningsmenn að bakka þetta upp akkúrat núna,“ sagði Helgi.