

Helgi Fannar og Hörður Snævar fóru yfir það helsta í Íþróttavikunni á 433.is.
Meiðslalisti KR, sem er á toppi Bestu deildarinnar, er að stækka og menn eins og Finnur Tómas Pálmason, Michael Akoto Arnór Ingvi Traustason og Ástbjörn Þórðarson að glíma við meiðsli.
„Það er að þykkjast hjá þeim meiðslalistinn, það eru þær áhyggjur sem ég hefði sem KR-ingur,“ sagði Hörður.
„Það er farið að taka í hópinn og ef Akoto og Finnur verða ekki með gegn Fram er það mikið áfall.“
Meiðsli léku Vesturbæinga grátt í fyrra og endaði liðið í fallbaráttu fram í síðustu umferð.
„Við sáum hvernig meiðslin fóru með þá í fyrra,“ benti Helgi einmitt á.