fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
433Sport

Arsenal ryður brautina og laðar að langflesta áhorfendur

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 15. maí 2026 22:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arsenal hefur verið leiðandi í þróun kvennaknattspyrnu um árabil og sýnir það sig á mætingu á völlinn á yfirstandandi leiktíð.

Skytturnar hafa ekki unnið deildina síðan 2019 og tekst það ekki í ár, en Manchester City er búið að tryggja sér titilinn. Liðið varð hins vegar Evrópumeistari í fyrra.

Arsenal gerði Emirates Stadium, sem hefur verið heimavöllur karlaliðsins síðan 2006, að opinberum heimavelli kvennaliðsins fyrir þetta tímabil einnig og það skilaði sér í góðri mætingu.

Mættu að meðaltali tæplega 35 þúsund manns á heimaleiki liðsins í deildinni á þessari leiktíð, sem er tvöfalt meira en hjá næsta liði, Chelsea. Þá er þetta betri mæting en á átta leikvanga í úrvalsdeildinni karlamegin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls
433Sport
Í gær

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt