

Besta deildin hefst á morgun með stórleik Víkings og Breiðabliks.
Viðureignir þessara liða hafa verið frábær auglýsing fyrir deildina undanfarin ár og þá sérstaklega þegar að Óskar Hrafn og Arnar Gunnlaugsson voru við stjórnvölin.
Í myndbrotinu sem fylgir fréttinni sjáum við Ólaf H. Kristjánsson viðburðar- og gæðastjóra deildarinnar taka málið í sínar hendur þar sem hann reynir að finna leiðir til að halda rígnum lifandi.