fbpx
Föstudagur 10.apríl 2026
433Sport

Hafa verulegar áhyggjur eftir að hafa séð fæturnar á honum – Munurinn á þeim vekur mikla athygli

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 9. apríl 2026 08:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stuðningsmenn hafa brugðist með undrun við líkamlegu ástandi James Maddison á meðan hann vinnur sig til baka eftir alvarleg meiðsli.

Maddison, sem leikur með Tottenham Hotspur, sleit krossband í hné á undirbúningstímabilinu í leik gegn Newcastle United í Seoul í Suður-Kóreu. Hann hefur því misst af öllu tímabilinu til þessa.

Á meðan á endurhæfingu stendur hefur hann birt efni á samfélagsmiðlum og YouTube, þar sem hann sýnir frá bataferlinu. Nýlegt myndband úr ræktinni hefur þó vakið mikla athygli, þar sem sjá má greinilegan mun á vöðvamassa í fótum hans.

Stuðningsmenn hafa bent á að hægri fótur hans, sem varð fyrir meiðslunum, sé mun rýrari en sá vinstri. Margir hafa lýst yfir áhyggjum og bent á hversu erfið slík meiðsli geta verið fyrir íþróttamenn.

Einn stuðningsmaður sagði að þetta sýndi vel hversu mikið líkaminn breytist eftir svona meiðsli, á meðan annar taldi að Maddison væri enn langt frá því að ná sínu besta formi.

Getty

Maddison hefur sjálfur viðurkennt að andlegi þátturinn hafi verið erfiður. Í viðtali fyrr á árinu sagði hann að hann hefði upplifað erfiða og einmana daga á meðan á bataferlinu stæði.

„Þetta var sárt og erfitt að sætta sig við, sérstaklega með stórt tímabil fram undan,“ sagði hann.

„En maður verður að halda áfram og vinna í endurhæfingunni.“

Þrátt fyrir erfiðleikana er Maddison staðráðinn í að snúa aftur sterkari en áður, þó líklegt sé að hann spili ekki aftur á þessu tímabili.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Sögusagnir um agabann eftir að hann fór að sænga hjá dóttur yfirmanns

Sögusagnir um agabann eftir að hann fór að sænga hjá dóttur yfirmanns
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Stuðningsmaður Forest lést eftir að hafa ferðast til Portúgal á leik

Stuðningsmaður Forest lést eftir að hafa ferðast til Portúgal á leik
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Tölvupóstur yfirmanns lekur út – „Tak fyrir þennan fallega póst, hoppaðu nú upp í rassgatið á þér“

Tölvupóstur yfirmanns lekur út – „Tak fyrir þennan fallega póst, hoppaðu nú upp í rassgatið á þér“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Þrjú ensk stórlið og PSG á eftir 100 milljón punda manninum

Þrjú ensk stórlið og PSG á eftir 100 milljón punda manninum
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Vilja ekki hleypa honum til Manchester

Vilja ekki hleypa honum til Manchester
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Æfing Stelpnanna okkar á morgun opin öllum

Æfing Stelpnanna okkar á morgun opin öllum