

Chelsea gæti staðið frammi fyrir stóru áfalli í sumar ef miðjumaðurinn Enzo Fernandez lætur verða af því að óska eftir félagaskiptum.
Samkvæmt spænskum miðlum er argentínski landsliðsmaðurinn, sem er 25 ára, að undirbúa að leggja fram formlega beiðni um að fá að fara frá félaginu til að greiða fyrir mögulegum félagaskiptum til Real Madrid.
Fernandez hefur verið lykilmaður hjá Chelsea síðan hann kom til félagsins og hefur vakið athygli með frammistöðu sinni á miðjunni. Áhugi Real Madrid kemur því ekki á óvart, enda félagið stöðugt á höttunum eftir fremstu leikmönnum heims.
Miðjumaðurinn er í agabanni núna hjá Chelsea eftir að hafa látið hafa eftir sér í viðtali að það væri draumur að búa í Madríd.
Það virðist því stefna í læti í sumar en Chelsea mun þurfa að standa fast á sínu til að halda í Enzo.