

Alfreð Finnbogason, yfirmaður knattspyrnumála hjá Rosenborg, segir traust enn ríkja til þjálfarans Alfred Johansson þrátt fyrir slakt gengi liðsins í upphafi tímabils.
Rosenborg hefur tapað fyrstu þremur leikjum sínum í norsku úrvalsdeildinni og hefur hvorki skorað mark né fengið stig. Það hefur aukið þrýsting á Johansson og vakið spurningar um framtíð hans í starfi.
Alfreð segir þó engan vafa leika á stuðningi við þjálfarann. „Við erum ekki þar sem við viljum vera, en við getum ekki vorkennt okkur. Ég er sannfærður um að Alfred geti snúið þessu við,“ sagði hann.
Hann benti einnig á að þolinmæði sé minni hjá stórum félögum eins og Rosenborg. „Ég hef séð að það er minni þolinmæði hér en víða annars staðar, en þannig er það hjá stórum félögum,“ bætti hann við.
Alfreð, sem tók við starfi í janúar, segir áhersluna vera á að bæta liðið og undirbúa næstu leiki sem best.
„Við teljum enn að Alfred sé rétti maðurinn fyrir okkur. Það hefur ekkert breyst,“ sagði hann að lokum.