
David Raya var enn og aftur stórkostlegur fyrir Arsenal er liðið vann Sporting í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gær.
Kai Havertz skoraði sigurmarkið í blálokin en Raya var valinn maður leiksins. Spánverjinn hefur verið einn allra besti leikmaður Arsenal í uppgangi liðsins undanfarin ár.
„Hann er ótrúlegur og er enn vanmetinn í fótboltaheiminum. Fyrir mér er hann besti markvörður í heimi síðustu tvö tímabil,“ sagði markaskorarinn Havertz eftir leik í gær.
„Hann hefur bjargað okkur svo oft og við erum svo glaðir með að hafa hann í okkar liði,“ bætti Þjóðverjinn við.
Stjóri Arsenal, Mikel Arteta, hrósaði Raya einnig í hástert.
„Ég veit ekki einu sinni hvaða lýsingarorð á að nota yfir hann,“ sagði hann.