

Vanessa Mariposa hefur staðfest samband sitt við knattspyrnumanninn Tom Krauss með færslu á samfélagsmiðlum.
Mariposa, sem er 33 ára áhrifavaldur og raunveruleikastjarna, hefur undanfarnar vikur verið orðuð við Krauss, sem leikur með FC Köln. Nú hefur hún gert sambandið opinbert með myndum og myndbandi þar sem þau sjást kyssast.

Áður höfðu þau sést saman úti á götu og hún studdi hann meðal annars á leik gegn Borussia Dortmund.
Í færslunni deildi hún einnig myndum úr sameiginlegu fríi þeirra og ferð til New York City. Hún skrifaði. „Hjarta mitt fann þig, þetta er sönn ást.“

Mariposa, sem hefur tekið þátt í þýskum raunveruleikaþáttum á borð við Das Sommerhaus der Stars, sagði að þau hefðu þekkst í nokkra mánuði.
