
Enska úrvalsdeildin mun eiga að minnsta kosti fimm lið í Meistaradeildinni á næstu leiktíð.
Aukaplássið var staðfest eftir að Arsenal vann Sporting 0-1 í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum keppninnar í gær.
UEFA veitir tvö aukasæti til þeirra deilda sem standa sig best í Evrópukeppnum og enska deildin hefur verið efst þar í vetur.
Það þýðir að fimmta sæti deildarinnar tryggir þátttöku í Meistaradeildinni.
Mikil barátta er um sætið, þar sem Liverpool er í fimmta sæti með naumt forskot á meðal annars Chelsea og Newcastle.