fbpx
Miðvikudagur 15.apríl 2026
433Sport

Viðstaddir furðu lostnir vegna farþega sem horfði á klám um borð

433
Þriðjudaginn 7. apríl 2026 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Faustino Asprilla er fyrrverandi knattspyrnumaður sem var heldur betur skrautlegur. The Upshot tók saman furðusögur frá ferli hans.

Þessi fyrrum kólumbíski landsliðsmaður er í dag 56 ára gamall en hann lék með Newcastle frá 1996-1998.

Asprilla kom frá Parma og byrjaði á grannaslag gegn Middlesbrough. Hann bjóst ekki við að spila svo hann fékk sér vel af rauðvíni í liðsrútunni. Honum að óvörum var hann settur inn á sem varamaður en hann lagði upp mark í fyrsta leik með frábærum tilþrifum.

Það eru margar magnaðar sögur af Asprilla frá tímanum í Newcastle. Þar var lífstíll hans ekki beint atvinnumanni í knattspyrnu sæmandi. Þá spilaði hann einhvern tímann klámmyndir í liðsrútunni og kom öllum í opna skjöldu, auk þess sem hann djammaði mikið.

Um hæfileika Asprilla gat þó enginn deilt. Hann skoraði eitt sinn þrennu gegn Barcelona í óvæntum sigri í Meistaradeildinni. Hann fagnaði með því að fá stelpur heim í íbúð sína þar sem þau stunduðu hópkynlíf.

Síðar á ferlinum var Asprilla á mála hjá Universidad de Chile um skeið og mætti hann eitt sinn með byssu á æfingu þegar hann var ósáttur við liðsfélaga sína. Hreint magnaður.

Skrautlegum athæfum Asprilla lauk ekki með ferli hans. Eftir ferilinn sat hann til að mynda fyrir allsnakinn í eitt skiptið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Arteta tjáði sig um meiðsli lykilmanna

Arteta tjáði sig um meiðsli lykilmanna
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Fulltrúar Liverpool og United voru á staðnum og urðu hrifnir

Fulltrúar Liverpool og United voru á staðnum og urðu hrifnir
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

PSG vann á Anfield og flaug áfram – Dramatík á Spáni og Barcelona úr leik

PSG vann á Anfield og flaug áfram – Dramatík á Spáni og Barcelona úr leik
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Fáklædd kona olli árekstri – Sjáðu myndirnar

Fáklædd kona olli árekstri – Sjáðu myndirnar
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Svona er byrjunarlið Íslands – Glódís jafnar leikjametið og Thelma byrjar

Svona er byrjunarlið Íslands – Glódís jafnar leikjametið og Thelma byrjar
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Opnar á það að fara frá Arsenal í sumar og gæti haldið heim

Opnar á það að fara frá Arsenal í sumar og gæti haldið heim