fbpx
Þriðjudagur 21.apríl 2026
433Sport

Maguire segist finna fyrir því að eitthvað mjög spennandi sé í uppsiglingu á Old Trafford

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 7. apríl 2026 15:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Harry Maguire skrifaði undir nýjan samning við Manchester United í dag. Hann telur bjarta tíma framundan hjá félaginu.

Miðvörðurinn stæðilegi var keyptur frá Leicester á 80 milljónir punda árið 2019. Gengið hefur verið kaflaskipt en er hann í dag algjör lykilmaður undir stjórn bráðabirgðastjórans Michael Carrick.

„Að leika fyrir Manchester United er mesti heiður sem til er. Því fylgir ábyrgð sem gerir mig, sem og fjölskyldu mína, stoltan alla dag.

Ég er svo glaður með að framlengja dvöl mína hjá þessu ótrúlega félagi og spila fyrir okkar einstöku stuðningsmenn áfram,“ segir Maguire um nýja samninginn.

Mikill uppgangur hefur verið á Old Trafford frá því Carrick tók við af Amorim. Ekki er ljóst hver tekur svo við í sumar til lengri tíma en Maguire segist finna fyrir því að eitthvað jákvætt sé að fæðast.

„Þú finnur fyrir metnaðinum og því sem býr í þessum spennandi hópi. Það er ljóst á öllum að þeir ætla sér að berjast um stóra titla á næstunni og ég trúi því að við eigum okkar bestu augnablik saman enn inni.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

United og spænski risinn sögð skoða Emery

United og spænski risinn sögð skoða Emery
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

PSG skoðar tvo kosti í sóknarlínu sína

PSG skoðar tvo kosti í sóknarlínu sína
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Stelpurnar okkar harkalega gagnrýndar fyrir þessa hegðun á laugardag – „Þá ertu ekki sátt eftir leik“

Stelpurnar okkar harkalega gagnrýndar fyrir þessa hegðun á laugardag – „Þá ertu ekki sátt eftir leik“
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Skilnaður setur hlaðvarpið í uppnám

Skilnaður setur hlaðvarpið í uppnám
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

FH á útivelli fjóra leiki í röð

FH á útivelli fjóra leiki í röð
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Staðfesta ráðningu á eftirmanni Iraola

Staðfesta ráðningu á eftirmanni Iraola
433Sport
Í gær

Chelsea og Liverpool eltast við eftirsóttan táning

Chelsea og Liverpool eltast við eftirsóttan táning
433Sport
Í gær

Sjáðu þegar nýrri rangstöðureglu Wenger var beitt í fyrsta sinn

Sjáðu þegar nýrri rangstöðureglu Wenger var beitt í fyrsta sinn