fbpx
Föstudagur 17.apríl 2026
433Sport

Bíllinn sem hann ók vekur athygli – Milljarðamæringur sem er að taka bílprófið

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 6. mars 2026 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Franski stórstjarnan Kylian Mbappé vakti athygli í París á fimmtudag þegar hann sást keyra um borgina á fremur látlausum bíl, þrátt fyrir að eiga safn ofurbíla að verðmæti um tveggja milljóna punda.

Mbappé, sem er 27 ára og leikmaður Real Madrid, sást aka Mini Cooper S breiðþaki sem kostar um 35 þúsund pund. Það er töluvert ódýrari kostur en margir aðrir bílar í eigu hans, en talið er að hann eigi meðal annars Ferrari SF90 sem kostar um 400 þúsund pund og BMW i7 sem metinn er á um 140 þúsund pund.

Framherjinn er sagður hafa snúið aftur til Parísar til að fá annað álit á hnémeiðslum sem gætu sett þátttöku hans í hættu í komandi Meistaradeildarleik Real Madrid gegn Manchester City.

Samkvæmt spænskum fjölmiðlum hefur Mbappé nýtt tímann á hliðarlínunni til að klára að taka bílpróf. Hann fékk nýlega ökuskírteini sitt, en hafði áður sagt að það hefði ekki verið forgangsatriði á ferlinum.

„Einn gallinn við að ná árangri svona snemma er að maður missir af einföldum hlutum í lífinu, eins og að taka bílpróf,“ sagði Mbappé árið 2023.

Þrátt fyrir að hafa aðgang að dýrum sportbílum virðist hann því hafa valið einfaldari kost á meðan dvöl hans í París stendur yfir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Þetta er raunveruleg ástæða þess að Maguire fékk lengra bann

Þetta er raunveruleg ástæða þess að Maguire fékk lengra bann
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Segir frá því af hverju Ronaldo henti honum út af Instagram

Segir frá því af hverju Ronaldo henti honum út af Instagram
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Vini Jr urðaði yfir Bellingham – „Haltu kjafti og lokaðu á þér munninum“

Vini Jr urðaði yfir Bellingham – „Haltu kjafti og lokaðu á þér munninum“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Stjarna Arsenal fékk stórfurðulega spurningu eftir að liðið komst áfram í gær – Myndband

Stjarna Arsenal fékk stórfurðulega spurningu eftir að liðið komst áfram í gær – Myndband
433Sport
Í gær

Þarf að sætta sig við hressilega launalækkun í sumar

Þarf að sætta sig við hressilega launalækkun í sumar