

Michail Antonio var mjög nálægt því að snúa aftur í ensku úrvalsdeildina eftir erfiðan tíma í kjölfar alvarlegs bílslyss.
Framherjinn, sem er 35 ára gamall, var samningslaus í nærri ár eftir að hann yfirgaf West Ham í lok síðasta tímabils. Antonio hafði ekki spilað með félaginu síðan í desember 2024 þegar hann lenti í alvarlegu bílslysi sem skildi hann eftir með brotið lærbein og setti feril hans í mikla óvissu.
Antonio hélt þó áfram að æfa með West Ham meðan hann var í endurhæfingu. Þegar ljóst varð að félagið myndi ekki bjóða honum nýjan samning fór hann að leita sér að nýju liði. Mörg félög vildu þó fyrst sjá hann æfa til að sannreyna líkamlegt ástand hans eftir slysið.
„Ég hef enn þá eiginleika sem ég hafði í úrvalsdeildinni síðustu tíu árin,“ sagði Antonio í viðtali við BBC. „En sum félög vildu ekki einu sinni skoða mig vegna slyssins.“
Hann viðurkenndi að hann hefði þurft að kyngja stolti sínu og samþykkja að æfa með félögum til að sanna að hann væri tilbúinn aftur. Hann æfði meðal annars með Brentford í tvær vikur og var nálægt því að skrifa undir samning.
Daginn áður en samningurinn átti að ganga í gegn kom hins vegar í ljós að hann hafði slitið vöðva í kálfa. „Fyrsta daginn lá ég bara í rúminu og grét,“ sagði Antonio. „Daginn eftir vildi ég ekki einu sinni fara fram úr.“
Antonio hefur þó nú loksins fundið sér nýtt félag, hefur hann samið við katarska félagið Al-Sailiya og mun halda ferli sínum áfram þar.