

Þýski markvörðurinn Georg Koch er látinn, 54 ára að aldri, eftir tveggja ára baráttu við krabbamein.
Koch átti langan og fjölbreyttan feril í evrópskum fótbolta og lék meðal annars með PSV Eindhoven í Hollandi, Rapid Vín í Austurríki og Dinamo Zagreb í Króatíu. Hann hóf atvinnumannaferil sinn með Fortuna Düsseldorf í þýsku Bundesligunni árið 1992 og lék síðar með félögum á borð við Arminia Bielefeld, Kaiserslautern, Energie Cottbus og MSV Duisburg.
Ferli hans á hæsta stigi lauk hins vegar með dramatískum hætti árið 2008 þegar flugeldur sprakk nálægt hægra eyra hans í leik Rapid Vín gegn erkifjendunum Austria Vín. Koch þurfti að fara af velli á börum eftir atvikið og varð fyrir varanlegum heyrnarskaða og jafnvægisvandamálum.
Árið 2009 tilkynnti hann að hann gæti ekki haldið ferlinum áfram. „Ég vonaði fram á síðustu stundu að ég gæti haldið áfram að spila en ég verð að viðurkenna að það er ekki mögulegt,“ sagði Koch þá og bætti við: „Tveir heimskingjar bera ábyrgð á því að ég þurfi að hætta.“

Hann sneri stuttlega aftur í knattspyrnu síðar sama ár með sjöttu deildar liðinu SC Herford, en lék aðeins einn leik áður en hann lagði hanskana endanlega á hilluna.
Á ferlinum spilaði Koch 213 leiki í efstu deild og 165 í næstefstu deild í Þýskalandi. Með Dinamo Zagreb vann hann bæði króatíska meistaratitilinn og bikarkeppnina.
Eftir að ferlinum lauk starfaði hann sem markvarðaþjálfari. Í maí 2024 greindist hann með briskrabbamein og sögðu læknar honum þá að hann ætti aðeins nokkra mánuði eftir ólifaða.
Koch lést 4. mars, aðeins mánuði eftir að hafa fagnað 54 ára afmæli sínu. Jens Lehmann, fyrrum landsliðsmarkvörður Þýskalands, minnist hans með hlýjum orðum. „Þetta er sorgardagur. Georg Koch er farinn allt of snemma.“