

Paul Scholes, fyrrum miðjumaður Manchester United, gagnrýndi fyrrverandi liðsfélaga sinn Michael Carrick eftir tap United gegn Newcastle í ensku úrvalsdeildinni.
United tapaði leiknum 2-1 á St James’ Park þrátt fyrir að hafa spilað gegn tíu mönnum stóran hluta síðari hálfleiksins eftir að Jacob Ramsey fékk rautt spjald rétt fyrir leikhlé. Scholes lét skoðun sína í ljós á Instagram þar sem hann gerði lítið úr frammistöðu liðsins.
„Michael hefur klárlega eitthvað sérstakt við sig… því United hafa verið HRÆÐILEGIR síðustu fjóra leiki… góða nótt! Tonali,“ skrifaði Scholes og vísaði þar í Sandro Tonali, leikmann Newcastle.
Tilvísunin tengist fyrri ummælum Scholes þar sem hann sagði ítalska miðjumanninn vera betri en Declan Rice hjá Arsenal í umræðuþætti um knattspyrnu.
Newcastle tryggði sér sigurinn með vítaspyrnumarki frá Anthony Gordon og glæsilegu marki frá varamanninum Will Osula seint í leiknum. Casemiro hafði áður jafnað metin fyrir United með skalla í uppbótartíma fyrri hálfleiks.
Scholes og Carrick léku saman í 160 leikjum fyrir Manchester United á árunum 2006 til 2013 og unnu saman átta stóra titla, þar á meðal fimm ensk meistaratitla og Meistaradeild Evrópu.
Carrick tók við liðinu sem bráðabirgðastjóri eftir að Ruben Amorim var rekinn í janúar og hefur náð ágætum úrslitum síðan. United situr nú í þriðja sæti deildarinnar og er í baráttu um sæti í Meistaradeildinni.
Carrick var þó ósáttur eftir leikinn gegn Newcastle. „Við erum ekki ánægðir með frammistöðuna í kvöld. Þetta var leikur sem við hefðum getað stjórnað betur, en Newcastle á hrós skilið,“ sagði hann.