fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
433Sport

Íslandi brá fyrir í ótrúlegri upprifjun – Var með klámstjörnu og notaði það allra heilagasta til að hrekkja vin sinn

433
Miðvikudaginn 4. mars 2026 08:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Daninn Thomas Gravesen var magnaður karakter innan vallar sem utan. The Upshot reifaði feril hans og tók fyrir nokkrar góðar sögur.

Á tíunda áratugnum var Gravesen farinn að vekja athygli með Vejle í heimalandinu. Hann fékk að vísu sex mánaða bann á einum tímapunkti fyrir skelfilega tæklingu á liðsfélaga. Það breytti því hins vegar ekki að Gravesen fékk skipti til þýska stórliðsins Hamburg.

Þar gerði kappinn ýmislegt af sér og mætti meðal annars með flugelda á æfingu í eitt skiptið og kveikti í þeim á æfingasvæðinu. Gravesen var mikið fyrir svona athæfi því hann mætti einu sinni með paintball byssu á æfingu Everton síðar á ferlinum og hóf að skjóta á liðsfélaga.

Gravesen fór einnig illa með liðfélaga sína í danska landsliðinu. Hann setti ísmola í stuttbuxur Jesper Grønkjær á HM 2002. Ári síðar danglaði hann lim sínum í andlitið á Claus Jensen sem lá í sakleysi sínu í grasinu.

Síðar mætti Gravesen Íslandi með danska landsliðinu. Hann fór á kostum er Danmörk vann 6-0. Mike Tyson var staddur í Kaupmannahöfn og var heillaður af frammistöðum Gravesen. Hann fékk treyjuna hans og var í henni á meðan hann dvaldi í dönsku höfuðborginni.

Árið 2005 fór Gravesen afar óvænt í stjörnum prýtt lið Real Madrid. Þar lét hann stjörnur á borð við Ronaldo, Figo og Zinedine Zidane ekki komast upp með neitt múður. Hann stríddi þeim og tók í þá reglulega.

Á þessum tíma var Gravesen með dönsku klámstjörnunni Kira Eggerts. Þegar liðsfélagar báðu hann um myndir sagði kappinn: „Gúgglaðu hana bara, það er nóg af myndum þar.“

Gravesen var þó síðar ekki í náðinni hjá Real Madrid og fór til Celtic. Þar lenti hann í útistöðum við agaða stjórann Gordon Strachan. Eru sögur af því þegar Gravesen hélt dagblaði fyrir andlitinu á sér á meðan Strachan hélt liðsfund. Var Daninn búinn að búa til göt fyrir augun í sér.

Gravesen lagði skóna á hilluna aðeins 32 ára gamall og eyddi eftir það miklum tíma í Las Vegas. Kappinn er 47 ára gamall í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Hræðileg paneka spyrna kostaði Brentford – West Ham í átta liða úrslit

Hræðileg paneka spyrna kostaði Brentford – West Ham í átta liða úrslit
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Vill taka við Manchester United frekar en Tottenham í sumar

Vill taka við Manchester United frekar en Tottenham í sumar
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Icelandair flaug stjörnum Liverpool til Tyrklands í dag

Icelandair flaug stjörnum Liverpool til Tyrklands í dag
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Drátturinn í enska bikarnum: Chelsea og Arsenal fengu létta drætti – Stórleikur City og Liverpool

Drátturinn í enska bikarnum: Chelsea og Arsenal fengu létta drætti – Stórleikur City og Liverpool
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Meira en helmingur liða hófu leik með mínusstig

Meira en helmingur liða hófu leik með mínusstig
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Rodri sektaður um meira en 13 milljónir

Rodri sektaður um meira en 13 milljónir