fbpx
Föstudagur 13.mars 2026
433Sport

Sesko leggur mikið á sig til að ná árangri – Þetta gerir hann aukalega þessa dagana

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 13. febrúar 2026 10:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar Ruben Amorim kallaði Benjamin Sesko „control freak“ var það meint sem hrós, ekki gagnrýni. Eftir brottrekstur Amorim túlkuðu þó stjórnendur Manchester United orðin á annan hátt.

Amorim hafði í raun lýst því yfir að hann væri sannfærður um að Sesko myndi ná árangri hjá félaginu og smám saman virðist slóvenski framherjinn vera að sýna það.

Heimildarmenn á æfingasvæði United segja Sesko leggja meira á sig en flestir og vera sá leikmaður sem leggur mest á sigþegar kemur að því að fara yfir taktík.

Vinnusemi hans nær langt út fyrir æfingavöllinn í Carrington. Sesko notar meðal annars sýndarveruleikagleraugu til að setja sig í leikstöður og bæta yfirsýn sína á vellinum. Hann nýtir sér einnig gufuböð og rauðljósameðferðir til endurheimtar, vinnur með markþjálfa og stundar hugleiðslu.

Þá er hann með einkakokk sem vinnur í samráði við næringarfræðing United. Michael Carrick staðfesti þetta og sagði. „Ben leggur hart að sér. Hann er á góðum stað og tilbúinn að taka næsta skref.“

Sesko hefur þurft tíma til að aðlagast, líkt og hjá fyrri félögum sínum Liefering, Salzburg og RB Leipzig, þar sem hann blómstraði eftir aðlögunartímabil. Hann hefur aðeins verið í byrjunarliði 13 sinnum og United hefur oft spilað best án hefðbundins níu númera framherja.

Þolinmæði gæti þó skilað sér, enda er vilji Sesko til að bæta sig augljós.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Heimsfrægur áhrifavaldur kemur öllum á óvart með tilkynningu sinni

Heimsfrægur áhrifavaldur kemur öllum á óvart með tilkynningu sinni
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Telja sig vel geta skákað Liverpool í sumar

Telja sig vel geta skákað Liverpool í sumar
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Potter gerir langtímasamning

Potter gerir langtímasamning
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Horfa til Chelsea ef þeir komast ekki í Meistaradeildina

Horfa til Chelsea ef þeir komast ekki í Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Arsenal leiðir kapphlaupið – Vilja fleiri félög að borðinu til að hækka verðmiðann

Arsenal leiðir kapphlaupið – Vilja fleiri félög að borðinu til að hækka verðmiðann
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Segir leikmann sinn hafa beðist afsökunar eftir gærkvöldið

Segir leikmann sinn hafa beðist afsökunar eftir gærkvöldið