433

Stuðningsmenn United höfðu mikil áhrif á það að Carrick hélt starfinu

Mynd
Getty Images

Forráðamenn Manchester United ákváðu að gefa Michael Carrick meiri tíma í stjórastólnum þrátt fyrir afar slæmt gengi liðsins að undanförnu.

Samkvæmt David Ornstein hjá The Athletic höfðu viðbrögð stuðningsmanna eftir 3-0 tap gegn Bournemouth á dögunum mikil áhrif á ákvörðunina. Carrick fékk stuðning úr stúkunni á meðan leikmennirnir voru baulaðir af velli.

Forráðamenn United ræddu stöðuna innan félagsins og töldu að leikmennirnir þyrftu að axla ábyrgð í stað þess að enn einn stjórinn yrði látinn taka pokann sinn.

Ornstein segir þó að staðan á þjálfaramarkaðnum hafi einnig haft áhrif. Hefði draumakostur verið í boði telur hann líklegt að United hefði skipt um stjóra.

Carrick fékk því fleiri leiki til að snúa genginu við og vann liðið loks 3-2 sigur á Roma í Meistaradeildinni á þriðjudag, eftir níu leiki án sigurs þar á undan.