433

Stórtíðindi frá Ronaldo - Tilkynnir að hann sé hættur með landsliðinu

Mynd
Getty Images

Cristiano Ronaldo, einn besti knattspyrnumaður sögunnar, hefur ákveðið að leggja landsliðsskóna á hilluna eftir 23 ára feril með portúgalska landsliðinu.

Ronaldo, sem er 41 árs, greindi frá ákvörðun sinni í langri og tilfinningaþrunginni yfirlýsingu sem Daily Mail greinir frá.

Portúgalinn lék 234 landsleiki og skoraði 146 mörk, en hvort tveggja er heimsmet í karlalandsliðsfótbolta.

Hann varð Evrópumeistari með Portúgal árið 2016 og vann einnig Þjóðadeild Evrópu í tvígang.

„Til þjóðarinnar í Portúgal. Nú er komið að því að skila treyju númer sjö. Mér fannst hún aldrei eingöngu tilheyra mér,“ skrifaði Ronaldo.

„Í 23 ár fékk ég þau forréttindi og þá ábyrgð að klæðast henni og verja hana á völlum um allan heim. Nú er kominn tími til að afhenda hana framtíðinni.“

Ronaldo viðurkenndi að ákvörðunin hefði verið afar erfið.

„Þetta var ekki auðveld ákvörðun því sumar ákvarðanir eru ekki teknar með höfðinu einu saman, heldur líka hjartanu.“

Hann rifjaði upp ógleymanleg augnablik og þakkaði stuðningsmönnum fyrir samfylgdina.

„Mörkin gleymast, bikararnir enda á söfnum og metin verða slegin. En það er eitt sem tíminn getur aldrei tekið frá okkur: staðurinn sem við eigum í hjörtum fólks.“

Ronaldo þakkaði einnig samherjum, þjálfurum, starfsfólki og fjölskyldu sinni fyrir stuðninginn í gegnum árin.

„Ég gaf allt sem ég átti fyrir þessa treyju. Það komu sigrar sem ég mun aldrei gleyma og ósigrar sem enn er erfitt að hugsa til.“

Hann lauk yfirlýsingunni á hjartnæman hátt. „Í dag lýkur ferðalagi mínu með landsliðinu. Ég kveð með höfuðið hátt og stoltur af því sem ég áorkaði.“

„Takk fyrir þessi 23 ár. Takk fyrir að leyfa mér að lifa drauminn sem hófst þegar ég var lítill strákur á Madeira að elta fótbolta.“

Þar með lýkur einum merkasta landsliðsferli knattspyrnusögunnar.